L'amour est un oiseau rebelle
Nei, hvað er að gerastHeiða Margrét
hæ allir þeir sem nenna enn að líta hingað inn.Ég var alveg hætt þessu bloggstandi en ákvað að setja smá klausu hérna inn.
ég geri ekki mikið þessa dagana nema að vinna og sofa. Ég er orðin tónmenntakennari í grunnskóla, starfsmaður í félagsmiðstöð, tónlistarkennari í leikskóla, kórstjóri og söngkennari...þannig að það er nóg að gera hjá mér :)
Ég er flutt í einbýlilshús með stórum garði, rifsberjum og rabbabara og stórum palli....getur ekki verið betra :) Það mætti bara halda að ég væri að verða fullorðin :) var meira að segja svo dugleg í sumar og bjó til mína eigins rabbabarasultu og rifsberjasultu.
SumarfríHeiða Margrét
Nú á ég bara eftir að vinna í þrjá daga og svo er ég komin í sumarfrí...get ekki beðið.Ég ætla að byrja fríið á því að fara með henni Valdísi minni í ferðalag....við ætlum að keyra á Akureyri og tjalda og finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera á leiðinni, látum að það alveg ráðast hvað verður gert :) Eina sem ég veit er að ég ætla að borða á Greifanum og jafnvel að fá mér einn Brynju ís.
Annars er ekki mikið að frétta. Ég flyt í Hveragerði síðustu helgina í júlí.....þannig að það er alveg að koma að því, þeir sem vilja hjálpa eru meira en velkomnir.
Verð svo að vinna í Grunnskólanum, félagsmiðstöðinni, leikskóla og ég veit ekki hvað og hvað. En það fyrsta sem ég ætla að gera er að njóta þess að fara í frí :)
ReunionHeiða Margrét

Þarna er eg og Teddi í góðum gír á Reunioni
Þetta var svaka stuð og bíð bara eftir 20 ára hittinginum eftir fimm ár....þá á að vera ennþá meira húllumhæ.
Takk fyrir mig.
Ekki sáttHeiða Margrét
Ég fæ ekki að fara í Latabæ....hnuss!!!Flutningar í sumarHeiða Margrét
það má segja að ég sé orðin frekar þreytt á því að flytja, það virðist sem ég flyt á hverju ári og langar svolítið til þess að festa rætur.Í sumar ætla ég að flytja aftur til Hveragerðis...ég er ekki komin með íbúð ennþá en ef einhver þarna úti viti um góða íbúð til leigu í Hveró þá sá hinn sami láta mig vita ;)
Ég er að reyna að snapa mér vinnu þarna...komin með svona samtíning....þetta kemur allt í ljós.
Annars er svo sem ekki mikið að frétta..ég og Sónata höfum það bara ágætt, einar í kotinu.
Ég reyndar fór í sumarbústaðarferð um síðustu helgi með Ingu, Gumma og Helgu...alveg ágætis ferð. Ívar Áki kom í heimsókn á föstudeginum sem skemmdi alls ekki fyrir....já, þetta var bara ágætis bústaðarferð.
Næst á dagskrá er bara Eurovision og svo reunion...alltaf gaman af því...og svo get ég ekki beðið eftir því að Lilja komi á klakann.....luv ya hon!!!
En annars ætla ég bara að drífa mig í vinnuna á eftir....ætlum að kíkja á latabæjarstúdíóið...það ætti verða fjör :) og svo er það bara helgin...getur ekki verið betra.
Bless í bili
bloggHeiða Margrét
Maður ætti kannski að setja nokkrar línur hérna inn....það er bara svo erfitt að finna eitthvað að segja þegar manni finnst ekkert merkilegt vera að gerast hjá manni...ég fer í vinnuna á morgnana og reyni að kenna leikskólabörnum tónlist, sem er mjög skemmtilegt og svo klukkan fimm þá kem ég heim, horfi á nágranna, fæ mér að borða, knúsa kisuna mína og fer svo að sofa....Svo um helgar þá fer ég kannski í Hveragerði......djís......ég verð að eignast líf...þetta er ekki hægt.
Ég fór nú samt á Eskifjörð um síðustu helgi. Ástæðan var jarðarför, ekki skemmtileg ástæða en alltaf gaman að koma á Eskifjörð...ég átti nú heima þarna fyrstu þrjú ár ævi minnar.
Náði mér í kvef í leiðinni og er núna að drepast í ljótum hósta og skemmtilegheitum.
Svo er spurningin hvað maður ætti að gera af sér um helgina...hummm...þrífa.....skella mér í bíó....kíkja aðeins í kringluna..... já, ætli ég geri ekki bara allt þetta.....
hehe...ekki misskilja mig...þetta er ekkert vælublogg...ég er ekkert að vorkenna mér neitt...finnst bara alveg hrikalega fyndið hvað lífið er orðið mikil rútína...og svo auðvitað á svona krepputímum þá hefur maður ekki efni á að gera neitt skemmtilegt....langar hrikalega mikið að komast til útlanda....amma mín og Ella frænka ætla til bandaríkjanna um páskana að hitta Láru frænku og Ella vildi endilega að ég kæmi með...well...auðvitað langar mig með...ég hef aldrei farið í heimsókn til Láru frænku...en auðvitað eru ekki til neinir peningar fyrir svoleiðis..arrg....finnst þetta ekkert skemmtilegt. Finnst ömurlegt að peningar stjórni öllu.
Jæja, ég ætla að drífa mig á lappir og gera eitthvað af viti
see you!
Hvíl í friðiHeiða Margrét
Góður maður féll frá síðustu nótt.Setning helgarinnarHeiða Margrét
1.aðili: Ætli við förum ekki bara að sigla bráðum2.aðili: Farið þið ekki bara á jeppanum
Gleðilegt nýtt árHeiða Margrét
Gleðilegt nýtt ár
Þessi hátíð er búin að vera voða notaleg...langt frí og góður matur. draugurinn sem dinglaði hjá mér kom aftur í gær....ákvað að kveikja aðeins á sjónvarpinu...alltaf gaman af svoleiðis.
Í dag ætla ég svo að fara til Keflavíkur til ömmu og fá stuffed kalkún og svoleiðis.
Í dag ætla ég svo að fara til Keflavíkur til ömmu og fá stuffed kalkún og svoleiðis.
Gleðileg JólHeiða Margrét
Gleðileg jól allir saman
og ég þakka innilega fyrir allan stuðninginn sem þið hafið veitt mér á árinu sem er að líða. Ég vona svo að ég verði komin í jólakortagírinn um næstu jól ;)
og ég þakka innilega fyrir allan stuðninginn sem þið hafið veitt mér á árinu sem er að líða. Ég vona svo að ég verði komin í jólakortagírinn um næstu jól ;)
